⚠ Stór uppfærsla á vefnum í gangi. Vinsamlegast ekki birta vefinn fyrr en þessi borði hverfur (um kl. 17:00 EST). Spurningar: Breno.
Fróðleikur
/
Greinar

Yfirlagsárásir á posa: falin ógn sem verslanir mega ekki líta fram hjá

Stutt yfirlit

Í yfirlagsárás koma svikarar fölskum búnaði fyrir á posanum og ná þannig kortaupplýsingum og PIN-númerum. Posinn heldur áfram að virka eðlilega og þess vegna uppgötvast árásin oft seint. Afleiðingarnar geta verið fjárhagslegt tjón, truflun á afgreiðslu, minna traust viðskiptavina og brot á reglum um greiðsluöryggi. Þú getur dregið úr hættunni með þrennu: föstum venjum við að skoða posana, posum sem eru varðir gegn fikti og góðri yfirsýn yfir búnaðinn.

Efnisyfirlit

H2
H3
H4

Posinn getur tekið við hverri einustu greiðslu eins og ekkert sé, en samt kann einhver að hafa átt við hann.

Þetta er einmitt það sem gerir yfirlagsárásir (e. overlay attacks) svo erfiðar að greina. Viðskiptavinir greiða, færslurnar eru samþykktar og afgreiðslan gengur sinn vanagang. Á meðan getur afritunarbúnaður, sem komið hefur verið fyrir á posanum, safnað kortaupplýsingum og PIN-númerum án þess að nokkur taki eftir því.

Ólíkt netárásum, sem beinast að kerfum og hugbúnaði, nýta yfirlagsárásir sér sjálfan posann og umhverfið í kringum hann. Þess vegna skiptir sífellt meira máli að ganga úr skugga um að enginn hafi átt við posann.

Hér förum við yfir hvað yfirlagsárásir eru, hvaða áhættu þær hafa í för með sér og hvernig þú getur varist þeim.

Hvað er yfirlagsárás?

Í yfirlagsárás koma svikarar fölskum búnaði fyrir yfir hluta posans eða yfir allan posann til að komast yfir viðkvæmar greiðsluupplýsingar.

Búnaðurinn er hannaður til að falla inn í umhverfið. Sum tækin falla beint yfir lyklaborðið og skrá PIN-númerið þegar það er slegið inn. Önnur eru með kortalesara sem nær gögnum af segulrönd kortsins. Með þrívíddarprentun er líka orðið auðveldara að búa til hlífar sem líkjast ósviknum posum mjög vel, og það gerir svikabúnaðinn enn erfiðari að koma auga á.

Posinn sjálfur heldur áfram að taka við greiðslum undir fölsku hlífinni og því getur árásin farið fram hjá öllum í daglegum rekstri.

Fáar tölur eru til um yfirlagsárásir sérstaklega, en almenn gögn um kortasvik sýna hvers vegna það borgar sig að vera á varðbergi. Samkvæmt FICO fjölgaði tilkynntum tilvikum þar sem upplýsingum debetkorta var stolið um 46% í Bandaríkjunum á seinni hluta ársins 2024 miðað við fyrri hlutann, á meðan fjöldi debetkorta sem urðu fyrir barðinu jókst um 30%.

Eftir því sem sjálfsafgreiðsla og ómannaðir sölustaðir verða algengari skiptir líka meira máli hver kemst að posunum. Posi sem stendur fjarri starfsfólki, til dæmis á bensínstöð, í sjálfsala eða við bílastæði, gefur svikurum tækifæri til að setja upp eða fjarlægja búnað án þess að vekja athygli.

En hættan einskorðast ekki við sjálfsafgreiðslu. Hvar posinn er settur upp, hvernig fylgst er með honum og hvernig honum er viðhaldið skiptir jafn miklu máli og öryggið sem er innbyggt í tækið sjálft.

Kjarni málsins er einfaldur: Posi sem virkar er ekki endilega öruggur posi.

Hvort sem þú ert með einn posa eða marga á fleiri en einum stað dugar ekki að líta á þá öðru hverju. Það þarf fastar venjur.

Hvaða áhrif hefur yfirlagsárás á reksturinn?

Afleiðingarnar af því að átt hafi verið við posa geta náð langt út fyrir sjálfan þjófnaðinn á kortaupplýsingum.

Fjárhagslegt tjón og kostnaður við úrbætur: Stolin kortagögn geta leitt til sviksamlegra færslna, ágreinings við viðskiptavini og fjárhagslegrar ábyrgðar. Ef grunur vaknar um öryggisbrot getur þurft að rannsaka málið ítarlega, skipta um búnað, láta meta öryggið og vinna með færsluhirðinum.

Truflun á afgreiðslu: Ef grunur leikur á að átt hafi verið við posa getur þurft að taka hann úr notkun á meðan málið er skoðað. Þá þarf að athuga hvort önnur tæki hafi orðið fyrir áhrifum, útvega varaposa og koma greiðslumóttöku í öruggt horf á ný.

Á álagstímum getur jafnvel stutt stopp við kassann þýtt lengri raðir, tapaða sölu og meira álag á starfsfólk.

Traust viðskiptavina og orðspor: Viðskiptavinir gera ráð fyrir að kortaupplýsingarnar þeirra séu öruggar. Öryggisatvik getur grafið undan því trausti, ekki síst þegar upplýsingunum var stolið í gegnum tæki sem viðskiptavinurinn taldi öruggt.

Það getur tekið mun lengri tíma að endurheimta traust en að leysa sjálfan tæknivandann.

Reglur og skyldur: Grunur um að kortagögn hafi lekið getur kallað á rannsókn, tilkynningar og úrbætur samkvæmt öryggisstöðlum kortaiðnaðarins (PCI), reglum kortafyrirtækjanna og gildandi lögum.

Eftir atvikum gætu fylgt frekari úttektir, sektir eða krafa um að sýna fram á að viðeigandi úrbætur hafi verið gerðar.

Af hverju greiðsluöryggi skiptir máli í daglegum rekstri

Greiðsluöryggi hefur lengi fyrst og fremst verið skoðað út frá svikavörnum og regluvörslu. En það snýst um meira.

Posinn er hluti af því hvernig viðskiptavinurinn upplifir heimsóknina. Þegar átt hefur verið við hann, eða taka þarf hann úr notkun, hefur það áhrif á afgreiðsluna, reksturinn og traust viðskiptavina.

Þess vegna er öryggi posans hluti af því að halda rekstrinum gangandi.

Eftir því sem þú bætir við posum eða nýjum leiðum til að taka við greiðslum, til dæmis sjálfsafgreiðslu, þarf sömu öryggisvenjur alls staðar.

Markmiðið er ekki bara að bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis, heldur að hafa yfirsýn, eftirlit og verklag sem hjálpar þér að koma auga á hættuna snemma og lágmarka skaðann.

Öryggi á að vera hluti af daglegum rekstri, ekki sérverkefni sem gripið er til þegar eitthvað kemur upp á.

Þrjár leiðir til að draga úr hættu á yfirlagsárás

Engin ein ráðstöfun útilokar hættuna á því að átt sé við posa. Best er að verjast á fleiri en einn hátt í einu: með öruggum búnaði, reglulegri skoðun, fræðslu starfsfólks og yfirsýn yfir posana.

Svona getur þú styrkt varnirnar.

1. Settu fastar reglur um skoðun og aðgang að posunum

Regluleg skoðun, fræðsla starfsfólks og stýrður aðgangur að posunum eru undirstaðan í vörnum gegn yfirlagsárásum.

Komdu á fastri venju um að skoða posana og kenndu starfsfólkinu að þekkja merki þess að átt hafi verið við þá. Þessi merki eru meðal annars lausir hlutar, eitthvað sem hefur bæst við, brúnir sem standa út eða breytingar á útliti posans.

Haltu skrá yfir posana og taktu myndir af þeim eins og þeir eiga að líta út. Þá er auðveldara að sjá ef einhverju hefur verið breytt eða skipt um tæki.

Það skiptir líka máli hver kemst að posunum. Staðfestu deili á tæknimönnum áður en þeir fá aðgang að posunum, geymdu posa sem ekki eru í notkun á öruggum stað og skráðu allar breytingar á búnaðinum.

Starfsfólkið þarf líka að vita hvað það á að gera ef grunur vaknar: hætta strax að nota posann og láta yfirmann eða þjónustuaðila vita.

Þannig verður öryggi posanna hluti af daglegum rekstri en ekki eitthvað sem aðeins er hugsað um eftir að eitthvað kemur upp á.

2. Veldu posa með innbyggðum öryggisvörnum

Posar eru misvel varðir. Þegar þú endurnýjar búnaðinn skaltu velja posa sem eru hannaðir með bæði vélbúnaðar- og hugbúnaðarvörnum, til dæmis PCI-vottaða posa sem eru varðir gegn fikti og vinna greiðslur á öruggan hátt.

Sumir Verifone-posar, til dæmis M425 og M450, geta líka greint yfirlag og eru hannaðir til að hjálpa til við að koma auga á falskan búnað. Slíkir eiginleikar bæta við vörn gegn fikti en koma ekki í stað reglulegrar skoðunar og fræðslu starfsfólks.

Engin ein vörn útilokar allar hættur. Kynntu þér hvað posinn þinn getur og getur ekki, og notaðu tæknilegu varnirnar samhliða föstum öryggisvenjum.

3. Hafðu yfirsýn yfir posana og áætlun um viðbrögð

Ef þú ert með posa á fleiri en einum stað er erfitt að halda utan um öryggið án þess að hafa yfirsýn yfir allan búnaðinn.

Með miðlægri umsjón með posunum er hægt að sjá stöðu tækjanna, fylgjast með stillingum, setja inn uppfærslur og koma auga á ákveðin frávik í rekstri. Ef þú leigir posa hjá okkur sjáum við um hugbúnaðinn og uppfærslurnar og vöktum posana allan sólarhringinn.

Þetta kemur samt ekki í stað þess að skoða posana og fylgja föstum öryggisvenjum.

Það borgar sig líka að hafa skriflega áætlun um hvað gera skal ef grunur vaknar um að átt hafi verið við posa. Áætlunin þarf að segja hvernig posinn er tekinn úr notkun, hvernig sönnunargögn eru varðveitt, hverja þarf að láta vita og hvernig greiðslumóttaka kemst aftur í öruggt horf.

Því fyrr sem brugðist er við, því minni verður truflunin og því betur eru viðskiptavinirnir varðir.

Tryggðu öryggi við hverja greiðslu

Yfirlagsárásir sýna veikan blett í greiðsluöryggi: posi getur virst virka fullkomlega þó að átt hafi verið við hann.

Eftir því sem leiðum til að taka við greiðslum fjölgar þarf að verjast á marga vegu í einu: með öruggum búnaði, vakandi starfsfólki, líkamlegum öryggisráðstöfunum og stöðugu eftirliti með öllum posum.

Verifone hjálpar fyrirtækjum að taka við greiðslum á öruggan og áreiðanlegan hátt með búnaði sem er hannaður fyrir verslun nútímans.

Það er ekki nóg að tryggja færsluna sjálfa. Það skiptir ekki síður máli að verja tækið sem tekur við henni.

Viltu posa sem er uppsettur og tilbúinn til notkunar, með uppfærslum og þjónustu inniföldum? Skoðaðu posaleiguna eða fáðu tilboð.

Grunar þig að átt hafi verið við posann?

Hættu að nota posann, ekki reyna að fjarlægja neitt af honum og hringdu í okkur í síma 544 5060. Þjónustuverið er opið kl. 9–17 virka daga og bakvaktin kl. 17–23 virka daga og kl. 9–23 um helgar.

Viltu kynna þér fleiri varnir? Skoðaðu upplýsingamynd um greiðsluöryggi í verslunum þar sem farið er yfir níu varnarlög sem vernda færslur, posa og kortagögn.

‍

Verifone á Íslandi

Verifone er alþjóðlegt fyrirtæki í greiðslulausnum, en þjónustan hér á landi er íslensk. Við leigjum út posa á föstu mánaðarverði, bjóðum netgreiðslur og svörum í síma, líka á kvöldin og um helgar.

Þú finnur okkur í Hlíðasmára 12 í Kópavogi og nærð í okkur í síma 544 5060.

Nánar um okkur

Svipað efni

Greinar

Svona var Verifone Partner Hackathon á Norðurlöndum

Lesa meira
Greinar

Gervigreind gegn gervigreind: nýtt vopnakapphlaup í greiðsluöryggi

Lesa meira
Greinar

Hvernig Verifone og Logos Payment Solutions eru að endurskrifa reglurnar um sjálfsafgreiðslugreiðslur

Lesa meira