Greiðslulausnir fyrir hárgreiðslu- og snyrtistofur
Hvort sem þú rekur stofu með mörgum stólum eða leigir stól sjálf eða sjálfur, færðu posa sem passar. Gestir greiða hratt í móttökunni, posinn tengist Noona og þú sérð uppgjör dagsins á einum stað.

Lausnir sem passa stofunni
Hárvörur
Þjónusta og vörur í einni færslu
Selurðu sjampó, næringu eða aðrar vörur? Gesturinn greiðir fyrir þjónustuna og vörurnar í einni og sömu færslunni.
Staðfestingargjald
Minni hætta á að fólk mæti ekki
Fyrir lengri meðferðir eins og litun eða brúðargreiðslu geturðu sent greiðslutengil fyrir staðfestingargjaldi í tölvupósti eða SMS.
Stólaleiga
Þinn eigin posi og þitt eigið uppgjör
Leigirðu stól? Hver og einn getur verið með sinn eigin posa og sitt eigið uppgjör í Verifone Central, svo það fer ekkert á milli mála hver á hvaða greiðslu.
Utan stofunnar
Taktu posann með þér
Ferðu með þjónustuna á hjúkrunarheimili, á vinnustaði eða í heimaþjónustu? Þráðlaus posi tekur við greiðslum hvar sem farsímasamband næst.

Posar fyrir stofuna

Verifone V660p
Ný kynslóð greiðslutækja sem sameinar hraða, einfaldleika og háþróaða tækni

Verifone P630
Öruggur og hraðvirkur posi með beinni tengingu við afgreiðslukerfi.
Viltu aðstoð við að velja?
Segðu okkur frá stofunni, hversu margir stólar eru og hvaða bókunarkerfi þú notar, og við finnum lausn sem hentar.
Sérkjör fyrir notendur Noona
Í samstarfi við Noona bjóðum við hárgreiðslu- og snyrtistofum sérstakt verð á posa sem tengist bókunarkerfinu. Hafðu samband og við förum yfir kjörin með þér.

Posinn tilbúinn á nokkrum dögum
Þú fyllir út formið og við förum yfir þarfirnar með þér. Posinn kemur svo uppsettur og tilbúinn fyrir fyrsta gest dagsins.