Taktu við greiðslum á netinu, einfalt og öruggt
Hvort sem þú rekur vefverslun eða selur í gegnum samfélagsmiðla hefur Verifone lausnina. Öruggar netgreiðslur, íslensk þjónusta og eitt uppgjör með posanum þínum.

Netverslun gerð einfaldari
Tengist kerfinu sem þú notar nú þegar
Verifone tengist vinsælustu vefverslunarkerfunum, svo sem Shopify, WooCommerce og fleirum. Þú þarft ekki að vera forritari, því við aðstoðum þig við uppsetninguna.
Ef þú vilt sérsníða greiðsluferlið alveg geturðu notað API-ið okkar. Allar leiðbeiningar finnurðu á þróunarvefnum.

Veldu þá leið sem hentar þér
Þú þarft ekki að vera með stóra vefverslun til að taka við greiðslum á netinu.
Bættu öruggri greiðslusíðu við vefverslunina þína og taktu við öllum helstu kortum.
Engin vefverslun? Sendu greiðslutengil í tölvupósti, SMS eða á Messenger og fáðu greitt strax. Þetta hentar vel fyrir sölu á Instagram og Facebook.
Taktu við kortagreiðslum í gegnum síma eða tölvu, til dæmis fyrir pantanir og innborganir.
Ertu með áskriftir eða mánaðargjöld? Kortið er gjaldfært sjálfkrafa og þú þarft ekki að elta greiðslur.

Skýrt verð, engin binding
Netgreiðslur frá 2.500 kr á mánuði + 5 kr færslugjald. Engin stofngjöld og enginn binditími. Þú greiðir bara fyrir það sem þú notar.

Greiðsluleiðirnar sem viðskiptavinir þínir vilja nota
Taktu við Visa, Mastercard, Apple Pay, Google Pay og fleirum, allt í einni lausn.
Selurðu líka til ferðamanna eða út fyrir landsteinana? Við styðjum yfir 50 greiðsluleiðir um allan heim.

Komdu þér af stað í netverslun
Hafðu samband og við förum yfir þarfirnar. 2. Við setjum lausnina upp með þér. 3. Þú byrjar að taka við greiðslum.
Öryggi
Innbyggð svikavörn verndar bæði þig og viðskiptavini þína. Þú einbeitir þér að sölunni.

Útborganir
Þú færð greitt inn á reikninginn þinn daglega (veltur á samningi við færsluhirði).

Tilbúin(n) að byrja?
Segðu okkur aðeins frá rekstrinum og við finnum lausnina sem hentar. Það tekur bara nokkrar mínútur.