Posaleiga
Posar fyrir sjálfsafgreiðslu
Posar sem viðskiptavinurinn notar sjálfur, til dæmis í sjálfsölum, miðasölu og þvottastöðvum. Leiga frá 9.500 kr. á mánuði án VSK, þjónusta og uppfærslur innifaldar.

Verifone UX400/401
Snertilaus lesari sem tengist UX300, svo viðskiptavinurinn getur greitt með korti eða síma. Hluti af UX300-lausninni.

Verifone UX300
Kortalesarinn og sjálfur posinn í lausninni, settur upp í vélina. Við hann tengjast UX100 takkaborð og UX400 snertilaus lesari. Frá 9.500 kr. á mánuði án VSK.

Verifone UX700
Allt í einu tæki sem tekur við korti, síma og PIN-númeri. Einfaldasta leiðin ef vélin á að taka við greiðslum án starfsmanns. Frá 9.500 kr. á mánuði án VSK.

Verifone UX100
Takkaborð með skjá sem tengist UX300. Þar slær viðskiptavinurinn inn PIN-númerið. Hluti af UX300-lausninni.