

Friðheimar þjónusta þúsundir gesta á annasömum dögum þar sem hraði og stöðugleiki skiptir öllu máli. Með greiðslulausnum Verifone hafa þau einfaldað afgreiðslu, dregið úr álagi á starfsfólk og tryggt að greiðslur flæði hnökralaust – jafnvel þegar gestafjöldinn fer í hæstu hæðir.
Með Verifone höfum við fengið samþætta lausn sem tengir saman allar söluleiðar okkar, með rauntímayfirsýn sem við getum treyst á, hvort sem er í afgreiðslu, við borð eða í vefverslun.
- Kristján G. Gunnarsson, markaðs- og gæðastjóri Friðheima
Friðheimar taka á móti ótrúlegum fjölda gesta á hverjum degi – sérstaklega yfir sumarmánuðina þegar allt þarf að ganga hratt, örugglega og án truflana. Í slíkum rekstri getur greiðsluflæðið orðið flöskuháls sem hefur bein áhrif á upplifun gesta, streitu starfsfólks og afköst rekstrarins.
Með því að innleiða greiðslulausnir Verifone hafa Friðheimar náð fram mun hraðari og stöðugri afgreiðslu. Starfsfólkið finnur minna fyrir álagi við kassa, biðraðir styttast og uppgjör fer fram á skýran og einfaldan hátt.
Hannað til að samþættast við POS-kerfi og styðja hraðar, öruggar færslur með nútímalegri upplifun í kassa. Kjörið fyrir annasaman rekstur þar sem hvert sekúndubrot skiptir máli. Skoða P630

Handhæg og þráðlaus lausn sem einfaldar þjónustu við borð og styður hraða afgreiðslu þar sem gestir eru án þess að þurfa að fara á kassann til að greiða. Skoða T650P

Tengir saman sölu í staðnum og á netinu þannig að reksturinn fær sömu heildaryfirsýn og sömu gæðum í greiðsluupplifun, hvort sem viðskiptavinurinn er á staðnum eða kaupir á netinu. Skoða eComm

Við hjá Verifone getum hjálpað þér að einfalda greiðslur og fá betri yfirsýn, sama hversu fjölbreyttur reksturinn er. Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að greiða fyrir öruggari og skilvirkari greiðslum.
Svipað efni