Greiðslulausnir fyrir veitingastaði og kaffihús
Hvort sem þú rekur lítið kaffihús, bar eða veitingastað með fullan sal færðu posa sem fara að borðinu, tengjast kassakerfinu og ráða við annríkið.

Taktu við greiðslum á staðnum, á netinu eða hvort tveggja
Posar sem passa staðnum
Hvort sem gestir greiða við afgreiðsluborðið eða við borðið finnum við posa sem hentar. Allir posarnir taka við kortum, síma og úri.
Með þráðlausum posa gengur þjónninn að borðinu. Gesturinn þarf ekki að standa upp og kortið fer aldrei úr augsýn.
Nettir posar fyrir kaffihús þar sem hver sentímetri á afgreiðsluborðinu skiptir máli.
Snertilaus greiðsla tekur nokkrar sekúndur og röðin heldur áfram að hreyfast þegar mest er að gera.

Tengist kassakerfinu
Posinn tengist kassakerfinu þínu (m.a. DK, Regla, Noona, SalesCloud), svo upphæðin fer beint á posann og engar innsláttarvillur verða.

Matarvagnar, pop-up og hátíðir
Þráðlaus posi með eigin farsímatengingu virkar hvar sem farsímasamband næst, á tónleikum, hátíðum eða við matarvagninn.

Pantanir til að sækja
Taktu við pöntunum og greiðslum á vefsíðunni þinni, svo maturinn sé greiddur þegar hann er sóttur.

Staðfestingargjald fyrir hópa
Bókar hópur borð eða veislu? Sendu greiðslutengil fyrir staðfestingargjaldi og minnkaðu hættuna á að fólk mæti ekki.

Pantanir í síma
Hringir fyrirtæki og pantar veitingar fyrir fund? Sláðu kortaupplýsingarnar inn í sýndarposa í tölvunni og gakktu frá greiðslunni strax.

Uppgjör dagsins á einum stað
Greiðslur í salnum og á netinu birtast í einu yfirliti í Verifone Central, ásamt uppgjöri dagsins.

Við sjáum um posana
Posarnir koma uppsettir, við sjáum um uppfærslur, og ef posi bilar færðu nýjan sem fyrst.

Sjáðu hvenær er mest að gera
Skýrslurnar sýna hvaða dagar og tímar eru annasamastir, sem auðveldar þér að skipuleggja vaktir og innkaup.

Global Scale with Local Expertise
We make commerce happen across the planet, for businesses small and large. We're present in over 200 countries and process half of the world’s non-cash transactions. We help merchants and acquiring banks optimize processing flows to generate more value from their user base.

Expansive Payments Portfolio
Want to attract and retain businesses for your acquiring services? You need a comprehensive payment stack that includes all major card schemes, digital wallets, private label credit cards (PLCCs), gift cards, cryptocurrencies and more.

Safe and Secure
Our proven, trusted payment systems process over 12 billion transactions annually, using advanced encryption and tokenization technology to keep our merchants safe. Our robust suite of fraud-fighting tools and security features can protect your business, too.

Stay Ready for Anything
Got a busy working environment? Our POS systems, site controllers, food service solutions and payment devices are built to cope with high turnover in-store and at the gas pump, while ensuring payment security. Fuel your present and future growth with a solution stack that streamlines operations and elevates the customer experience.

Fast and Secure
Rest easy knowing your customers' transactions are being handled quickly, safely and in compliance with industry standards. Our POS systems and site controllers feature powerful processors and are equipped with EMV-ready and PCI compliant software.

Lowest Cost of Ownership
Make payment processing a growth driver, not a cost item by working with the right partners. Let your clients take advantage of our improved and futureproof payment solutions to consolidate costs and derive more value from end-users.

Úrval Verifone posa
Segðu okkur frá staðnum
Við förum yfir þarfirnar með þér, hvort sem þú ert með eitt kaffihús eða nokkra staði, og finnum lausn sem hentar.
Umsögn viðskiptavinar
Verifone er orðinn óaðskiljanlegur hluti af rekstri okkar
Í Friðheimum borða þúsundir gesta á hverju ári. Þar þarf afgreiðslan að ganga hratt og örugglega, hvort sem salurinn er hálfur eða fullur.

Viltu hraðari afgreiðslu í hádeginu?
Fáðu tilboð í dag. Við höfum samband innan sólarhrings á virkum dögum.



