Knowledge Hub
/
Leiðbeiningar

Stofnun API-lykils í Verifone Central

Verifone company logo with a stylized dot pattern on the left.

Stutt yfirlit

API-lykill gerir þér kleift að tengja eigin kerfi — bókhald, vefverslun eða önnur viðskiptakerfi — beint við Verifone. Hér förum við skref fyrir skref í gegnum innskráningu í Verifone Central og hvernig þú býrð til API-lykil á öruggan hátt.

Áður en þú byrjar: Þú þarft virkan aðgang að Verifone Central (netfang og lykilorð). Ef þú hefur ekki fengið aðgang skaltu hafa samband við þjónustuver Verifone.

Efnisyfirlit

H2
H3
H4

Skref fyrir skref

1. Opnaðu verifone.is í vafranum þínum.

2. Smelltu á „Þjónusta og aðstoð“ í efstu valmyndinni og veldu „Innskráning í Verifone Central“ úr fellilistanum.

3. Sláðu inn netfang og lykilorð, staðfestu reCAPTCHA og smelltu á „Innskráning“.

4. Þegar þú ert kominn inn smellirðu á hringinn efst í hægra horninu.

5. Undir „API-lyklar“ smellirðu á bláa hnappinn „Búa til API-lykil“.

6. Gluggi opnast með nýja lyklinum þínum. Smelltu á „Afrita opin lykil“ og vistaðu hann strax á öruggum stað.

Mikilvægt um öryggi

API-lykillinn birtist aðeins einu sinni. Afritaðu hann og geymdu á öruggum stað um leið og hann er búinn til — ef lykillinn tapast geturðu ekki kallað hann fram aftur. Þá þarftu að afvirkja hann og búa til nýjan.

Meðhöndlaðu API-lykilinn eins og lykilorð: ekki deila honum opinberlega og ekki vista hann þar sem óviðkomandi hafa aðgang.

Þarftu aðstoð?

Ef þú kemst ekki inn eða lykillinn virkar ekki sem skyldi er þjónustuver Verifone til staðar. Fáðu aðstoð

Um Verifone

Verifone er leiðandi alþjóðlegt tæknifyrirtæki á sviði greiðslulausna sem nýtur trausts stærstu vörumerkja heims. Við knýjum áfram hnattrænt greiðslunet sem gerir fyrirtækjum, fjártæknifyrirtækjum og fjármálastofnunum kleift að bjóða framúrskarandi verslunarupplifun – hvar sem viðskipti eiga sér stað.

Með því að sameina sveigjanlegan vettvang, opið vistkerfi með yfir 2.500 samþættingum og meira en fjögurra áratuga sérþekkingu í greiðslum einföldum við flókin greiðsluferli og opnum á ný tækifæri í öllum sölurásum.

Um okkur

Svipað efni

Leiðbeiningar

Verðskrá

Read more
Leiðbeiningar

Uppsetning á WooCommerce viðbót Verifone

Read more
Leiðbeiningar

Uppsetning á Shopify viðbót Verifone

Read more