Tenging við netverslun
Kortagreiðslur í Shopify-versluninni þinni
Tengdu Shopify-verslunina við Verifone og taktu við kortagreiðslum án forritunar. Þú slærð inn aðgangsupplýsingarnar frá okkur og getur byrjað að selja. Netgreiðslur kosta frá 2.500 kr. á mánuði án VSK, auk 5 kr. á færslu án VSK.

Það sem þú þarft til að byrja
Þú þarft þrennt:
- Netverslun á Shopify.
- Samning við færsluhirði um netgreiðslur.
- Aðgangsupplýsingar frá Verifone, sem þú slærð inn í Shopify.
Ertu ekki enn með samning? Fáðu tilboð og við förum yfir málið með þér. Notarðu annað kerfi? Sjáðu öll kerfin sem við styðjum.

Algengar spurningar
Netgreiðslur kosta frá 2.500 kr. á mánuði án VSK og 5 kr. á færslu án VSK. Þóknun færsluhirðis kemur svo fram í samningi ykkar á milli. Öll okkar verð eru í verðskránni.
Aðgangsupplýsingar sem þú færð frá Verifone: User ID, API key, Entity ID, Payment contract ID og 3DS contract ID. Í leiðbeiningunum sérðu hvar þær fara.
Já. Þú getur prófað greiðsluferlið í prófunarham áður en þú opnar fyrir alvöru greiðslur.
Hringdu í 544 5060 og veldu 1 fyrir þjónustuver og tækniaðstoð. Þjónustuverið svarar kl. 9–17 virka daga.
Svona byrjarðu
Selurðu líka í verslun eða á ferðinni?
Ef þú tekur líka við greiðslum í verslun, á markaði eða á viðburðum geturðu leigt posa frá Verifone. Þá sérðu netsöluna og posasöluna á sama stað í Verifone Central. Posi kostar frá 5.600 kr. á mánuði án VSK og kemur uppsettur og tilbúinn til notkunar. Skoða posaleigu
