Greiðslulausnir fyrir verslanir
Hvort sem þú rekur litla sérverslun eða nokkrar búðir, þá færðu posa sem ganga hratt fyrir sig við kassann, tengjast kerfunum þínum og virka þegar mest er að gera.

Seldu í búðinni, á netinu eða hvort tveggja
Posar sem passa versluninni
Hvort sem þú ert með einn afgreiðslukassa eða fleiri finnum við posa sem hentar. Posarnir tengjast kassakerfinu, svo upphæðin skilar sér beint á posann.

Styttri biðraðir
Með þráðlausum posa geturðu tekið við greiðslu hvar sem er í búðinni, á lagernum eða á útsölubás. Það styttir röðina við kassann á annasömum dögum.

Posaleiga án stofnkostnaðar
Leigðu posa frá 5.600 kr. á mánuði, án bindingar. Uppsetning og þjónusta fylgja með.

Seldu líka á netinu
Opnaðu netverslun eða tengdu Verifone við þá sem þú ert með. Viðskiptavinir geta þá verslað hvenær sem er, líka þegar búðin er lokuð.

Greiðslutenglar fyrir síma- og samfélagsmiðlapantanir
Fékkstu pöntun í síma, á Facebook eða Instagram? Sendu greiðslutengil í SMS eða tölvupósti og fáðu greitt strax, jafnvel án netverslunar.

Öruggar greiðslur á netinu
Kortaupplýsingar viðskiptavina eru verndaðar samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum (PCI) og greiðslan gengur hratt fyrir sig, líka í síma.

Allt á einum stað
Búðin og netverslunin í einu kerfi. Í Verifone Central sérðu allar færslur og uppgjör, hvort sem selt var við kassann eða á netinu.

Pantað á netinu, sótt í búð
Leyfðu viðskiptavinum að panta og greiða á netinu og sækja vöruna í búðina. Ef þarf að skila vöru geturðu endurgreitt beint á kortið.

Sjáðu hvað selst og hvenær
Skýrslur í Verifone Central sýna hvaða dagar og tímar eru annasamastir, svo þú getur skipulagt mönnun og innkaup betur.

Viltu aðstoð við að velja?
Við förum yfir þarfir verslunarinnar með þér og finnum lausn sem hentar.
Komdu versluninni af stað á nokkrum dögum
Fylltu út formið, við höfum samband og förum yfir þarfirnar, og posinn kemur uppsettur og tilbúinn.

Kort, sími eða úr. Viðskiptavinir greiða eins og þeim hentar og erlendir ferðamenn eins og þeir eru vanir heima.

Posar fyrir verslanir
Viltu hraðari afgreiðslu við kassann?
Fáðu tilboð í dag. Við höfum samband innan sólarhrings á virkum dögum.









