⚠ Stór uppfærsla á vefnum í gangi. Vinsamlegast ekki birta vefinn fyrr en þessi borði hverfur (um kl. 17:00 EST). Spurningar: Breno.

Verifone Central: öll salan þín á einum stað

Sjáðu hverja færslu um leið og hún fer í gegn, hvort sem greitt er með posa, greiðslutengli eða í vefverslun. Ertu þegar í viðskiptum við okkur? Skráðu þig inn.

Fáðu tilboð

Það sem þú sérð í Verifone Central

Færslur í rauntíma

Fylgstu með sölu dagsins jafnóðum. Hver færsla birtist um leið og hún fer í gegn, með upphæð, tíma og greiðslumáta.

Finndu hvaða færslu sem er

Viðskiptavinur spyr um greiðslu frá því í síðustu viku? Leitaðu eftir dagsetningu eða upphæð, sjáðu stöðu færslunnar og endurgreiddu beint úr henni ef þarf.

Skýrslur þegar þú þarft þær

Sæktu færslu- og uppgjörsskýrslur fyrir bókhaldið eða tímasettu þær svo þær verði til sjálfkrafa.

Greiðslur og posar á sama stað

Verifone Central skiptist í tvo hluta: Viðskipti, þar sem þú sérð greiðslur og skýrslur og tekur við greiðslum, og Stjórnun, þar sem þú sérð um notendur, sölustaði og stillingar. Hvað þú sérð fer eftir aðganginum þínum.

Skoðaðu færslur og skýrslur, endurgreiddu og taktu við greiðslum með sýndarposa eða greiðslutenglum.

Bættu við notendum, veldu hvaða aðgang hver starfsmaður fær og haltu utan um sölustaðina þína.

Sjáðu hvað gengur vel – og hvað ekki

Á greiðslustjórnborðinu sérðu helstu tölurnar í einu yfirliti.

‍Berðu saman tímabil: Hvernig gekk þessi mánuður miðað við þann síðasta? Sjáðu fjölda færslna og upphæðir hlið við hlið.

‍Hvernig greiða viðskiptavinir?: Sjáðu hvaða greiðslumátar eru mest notaðir, í posanum og á netinu.

‍Endurgreiðslur og hafnanir: Fylgstu með endurgreiðslum og hlutfalli samþykktra færslna og sjáðu strax ef kortum er hafnað óvenju oft.

Taktu við greiðslum án posa

Í Verifone Central geturðu líka tekið við greiðslum þegar viðskiptavinurinn er ekki á staðnum.

Viðskiptavinurinn gefur upp kortaupplýsingarnar í síma og þú slærð þær inn í Verifone Central.

Lesa meira um sýndarposann

Búðu til greiðslutengil og sendu hann í tölvupósti, skilaboðum eða hvar sem hentar. Þú þarft ekki vefsíðu og sérð í Verifone Central þegar greitt hefur verið.

Lesa meira um greiðslutengla

Hentar hvort sem þú ert með einn posa eða tíu

Einyrkjar og minni staðir

Fljótlegt að loka deginum: Berðu söluna í posanum saman við kassann og sjáðu strax ef eitthvað stemmir ekki.

Allt á einum stað: Þú þarft ekki að leita að strimlum eða tölvupóstum til að finna gamla færslu.

Einyrkjar og minni staðir

Fljótlegt að loka deginum: Berðu söluna í posanum saman við kassann og sjáðu strax ef eitthvað stemmir ekki.

Allt á einum stað: Þú þarft ekki að leita að strimlum eða tölvupóstum til að finna gamla færslu.

Fleiri posar og starfsfólk

Allir sölustaðir í einu yfirliti: Sjáðu hvaða sölustaður og hvaða posi tók hverja færslu.

Aðgangur eftir hlutverkum: Gefðu starfsfólki aðgang að því sem það þarf og engu öðru. Eftirlitsskráin sýnir hver gerði hvað.

Fleiri posar og starfsfólk

Allir sölustaðir í einu yfirliti: Sjáðu hvaða sölustaður og hvaða posi tók hverja færslu.

Aðgangur eftir hlutverkum: Gefðu starfsfólki aðgang að því sem það þarf og engu öðru. Eftirlitsskráin sýnir hver gerði hvað.

Posi og netsala

Ein heildarmynd: Færslur úr posanum, vefversluninni og greiðslutenglum birtast í sama yfirliti.

Ein innskráning: Þú þarft ekki að hoppa á milli kerfa til að sjá hvernig gengur.

Posi og netsala

Ein heildarmynd: Færslur úr posanum, vefversluninni og greiðslutenglum birtast í sama yfirliti.

Ein innskráning: Þú þarft ekki að hoppa á milli kerfa til að sjá hvernig gengur.

Leigðu posa frá 5.600 kr. á mánuði án VSK

Fáðu tilboð

Smíðar þú kassakerfi eða vefverslun?

Tengdu kerfið þitt við posa og netgreiðslur Verifone. Tækniskjölin eru á ensku

Tækniskjöl Verifone
JSON
{
        "type": "TRANSACTION_SUCCESS",
        "id": "7ce36c91f",
        "timestamp": "2021-09-23T12:13:00.514Z",
        "details": {
            "id": "551d2b1a",
            "instoreReference": "91542",
            "authorizedPaymentMethod": {
                "paymentType": "INVOICE"
            },
            "amount": 11703,
            "createdAt": "2021-09-23T12:08:38+01:00",
            "details": {
                "autoCapture": false,
                "mid": "K193"
            },
            "merchantReference": "ORDER-8790",
            "processor": "KLARNA",
            "paymentProduct": "KLARNA",
            "paymentProductType": "Klarna",
            "shippingInformation": {},
            "status": "AUTHORIZED",
            "shopperInteraction": "ECOMMERCE",
            "countryCode": "FI"
        }
    }

Svona færðu aðgang

Skref 1

Við stofnum aðganginn

Þegar þú ert kominn með posa eða netgreiðslur hjá okkur stofnum við aðgang að Verifone Central fyrir þig.

Skref 2

Virkjaðu aðganginn

Þú færð tölvupóst með leiðbeiningum, velur þér lykilorð og virkjar aðganginn.

Skref 3

Skráðu þig inn

Skráðu þig inn á emea.live.verifone.cloud og opnaðu Viðskipti fyrir greiðslur og skýrslur eða Stjórnun fyrir notendur og stillingar.

Vantar þig aðgang eða aðstoð?

Ertu með Verifone posa en ekki aðgang að Verifone Central? Við stofnum hann fyrir þig. Gengur eitthvað ekki upp? Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu í 544 5060. Símaþjónustan er opin kl. 9–17 virka daga.

Senda fyrirspurn

Algengar spurningar

Á emea.live.verifone.cloud. Þar finnurðu allar færslur og skýrslur.

Já, Verifone Central er á íslensku og fleiri tungumál eru í boði.

Skráðu þig inn í Verifone Central, opnaðu Viðskipti og veldu „Greiða með hlekk“. Nánar á síðunni um greiðslutengla.

Já. Opnaðu Viðskipti og veldu Skýrslugerð. Þar velurðu hvaða skýrslu þú vilt og hvenær hún á að verða til. Tilbúnar skýrslur finnurðu undir „Myndaðar skýrslur“.

Viltu vita meira?

Posaleiga

Posi, þjónusta og uppfærslur á föstu mánaðarverði, frá 5.600 kr. á mánuði án VSK.

Skoða posaleigu
Person holding a smartphone and a credit card, making an online payment.

Verðskrá

Öll verð fyrir posa og netgreiðslur á einum stað.

Sjá verðskrá

Ekki viss hvað hentar?

Segðu okkur aðeins frá rekstrinum og við finnum posa og lausn sem passar.

Fáðu tilboð