
.jpeg)
Erlendir gestir koma með kort og síma frá öllum heimshornum og búast við að geta greitt á augabragði, hvort sem það er í gestamóttökunni, í rútunni eða við jökulröndina. Ef greiðslan gengur ekki upp tapar þú sölunni og gesturinn man eftir því.
Hér förum við yfir það sem skiptir mestu máli þegar þú velur greiðslulausn fyrir ferðaþjónustu: erlend kort og snertilausar greiðslur, posa sem fara með þér hvert sem er, fyrirframgreiðslur á netinu og aðstoð þegar mest er að gera.
Flestir erlendir ferðamenn greiða snertilaust, með korti, síma eða úri. Þeir gera ráð fyrir að það virki alls staðar, jafnt á hóteli í Reykjavík sem á litlu kaffihúsi úti á landi.
Erlend kort virka yfirleitt eins og íslensk, en ekki alltaf. Útgefandi kortsins getur hafnað færslu erlendis vegna svikavarna, og hvaða kortategundum þú getur tekið við ræðst af samningi þínum við færsluhirði.
Gott að athuga:
Í ferðaþjónustu fer salan sjaldnast bara fram við afgreiðsluborð. Hún fer líka fram í rútunni, á bryggjunni, í hesthúsinu og við borðið á veitingastaðnum. Þá þarf posinn að fara með.
Þráðlausu posarnir frá Verifone, til dæmis V660p og T650p, nota bæði 4G og Wi-Fi. Þú getur því tekið við greiðslum þó að ekkert Wi-Fi sé á staðnum.
Ef posinn á að vera mikið úti skaltu spyrja um rafhlöðuendingu og hvernig hann þolir kulda, bleytu og hristing.
Í ferðaþjónustu kemur hluti teknanna oft inn áður en gesturinn mætir: staðfestingargjöld fyrir gistingu og fyrirframgreiðslur fyrir ferðir og hópa.
Með greiðslutenglum sendir þú gestinum tengil í tölvupósti eða skilaboðum og hann greiðir með korti, hvar sem hann er staddur. Ef gesturinn hringir og vill ganga frá bókun strax getur þú tekið við greiðslunni í sýndarposa beint í vafranum.
Notar þú bókunarkerfi eða vefverslun? Posarnir tengjast mörgum kassa- og bókunarkerfum sem eru í notkun hér á landi, til dæmis Godo.
Netgreiðslur kosta 2.500 kr. á mánuði og 5 kr. á færslu án VSK. Þóknun færsluhirðis bætist við og fer eftir samningi þínum við hann.
Greitt í eigin gjaldmiðli (DCC). Með DCC getur erlendur gestur valið að greiða í evrum, dollurum eða pundum í stað króna. Verifone býður DCC á Íslandi, svo gesturinn sér strax á skjá posans hvað hann greiðir í sínum gjaldmiðli og velur sjálfur hvort hann greiðir þannig eða í krónum.
Tax-Free. Gestir sem búa erlendis geta fengið virðisaukaskattinn endurgreiddan af vörum sem þeir taka með sér úr landi. Í verslunum með ullarvörur, hönnun og minjagripi heyrir starfsfólkið spurninguna „Do you do tax-free?“ oft á dag, og svarið getur ráðið því hvort af sölunni verður. Posar frá Verifone styðja Tax-Free, svo þú getur svarað þeirri spurningu játandi.
Í júní, júlí og ágúst kostar hver bilun meira en á öðrum árstímum. Röð við posa sem virkar ekki kostar bæði sölu og góðar umsagnir. Besti tíminn til að yfirfara greiðslulausnina er því utan háannatímans, áður en bókanir fyrir sumarið fara á flug.
Posaleiga hjá Verifone kostar frá 5.600 kr. á mánuði án VSK. Innifalið er posinn sjálfur, standur eða hleðslustöð, straumbreytir og netsnúra, hugbúnaður og uppfærslur, símaþjónusta og bakvakt, nýr posi ef hann bilar og vöktun allan sólarhringinn.
Skoða posaleigu · Sjá verðskrá
„Verifone er orðinn óaðskiljanlegur hluti af rekstri okkar.“ – Friðheimar
Hvort sem þú ferð einn með litla hópa eða rekur hótel og veitingastað finnum við lausn sem hentar. Það getur verið einn posi, nokkrir eða greiðslur á netinu.
Fáðu tilboð eða hringdu í 544 5060. Kynntu þér líka greiðslulausnir fyrir ferðaþjónustu.
Svipað efni