⚠ Stór uppfærsla á vefnum í gangi. Vinsamlegast ekki birta vefinn fyrr en þessi borði hverfur (um kl. 17:00 EST). Spurningar: Breno.
Fróðleikur
/
Fréttir

Verifone best í sínum flokki hjá Javelin annað árið í röð

Stutt yfirlit

Úttekt Javelin verðlaunar lausn Verifone sem gerir viðskiptavinum kleift að nota sama lífkennaauðkenni hjá öllum söluaðilum sem taka þátt.

Lausnin notar einstök líkamleg einkenni, eins og andlitsdrætti eða æðamynstur í lófanum, til að staðfesta hver viðkomandi er áður en aðgangur er veittur.

Hún fæst sem viðbót við núverandi búnað, með tengingu við afgreiðslukerfi frá ýmsum framleiðendum eða á Verifone Victa-posum með innbyggðri lífkennagreiningu.

Efnisyfirlit

H2
H3
H4

New York, 10. nóvember 2026 – Verifone, eitt fremsta fyrirtæki heims á sviði greiðslu- og verslunartækni, hefur annað árið í röð hlotið viðurkenninguna „Best in Class“ fyrir lífkennaauðkenningu og greiðslur (e. Biometric Identity and Payment Platform). Viðurkenningin er veitt í úttektinni 2026 Emerging Biometric Authentication at the Point of Sale Scorecard frá Javelin Strategy & Research. Javelin bendir sérstaklega á að með lausn Verifone geta viðskiptavinir skráð sig einu sinni og síðan greitt með því einu að líta á posann hjá öllum söluaðilum sem taka þátt.

„Í hvert sinn sem afgreiðsla hefur tekið framförum hefur viðskiptavinurinn þurft að hafa eitthvað meðferðis: kort, síma eða lykilorð. Með lífkennum fellur það skref niður,“ segir Amarinder Bansal, Senior Vice President, Global Products hjá Verifone. „Að hljóta viðurkenninguna annað árið í röð staðfestir að auðkenni viðskiptavinarins getur fylgt honum úr einni verslun í aðra, á öruggan hátt og með hans samþykki.“

Lífkennalausn Verifone notar einstök líkamleg einkenni, eins og andlitsdrætti eða æðamynstur í lófanum, til að staðfesta hver viðskiptavinurinn er áður en greiðsla er heimiluð.

Söluaðilar geta tekið lausnina í notkun á þrjá vegu:

  • sem viðbót við posa sem þegar eru í notkun, líka viðurkennda posa frá öðrum framleiðendum en Verifone,
  • með SDK- og API-tengingum frá Verifone sem byggja lífkennaauðkenningu inn í afgreiðslukerfi frá ýmsum framleiðendum, og
  • á völdum Verifone Victa-posum sem sameina lífkenni og kortagreiðslur (segulrönd og snertilaust EMV), tap-to-pay, farsímaveski, QR-kóða og greiðslur beint af bankareikningi.

Viðskiptavinir þurfa sjálfir að skrá sig til að nota lífkennalausn Verifone og hún skannar engan án þátttöku hans. Svokölluð lífsmarksgreining (e. liveness detection) ver gegn fölsunum og djúpfölsunum, og ef skönnun tekst ekki er hægt að greiða með korti eins og venjulega. Verifone geymir ekki lífkennaupplýsingarnar, heldur fyrirtækið eða stofnunin þar sem viðskiptavinurinn skráði sig. Lausnin fylgir alþjóðlegum kröfum um öryggi og persónuvernd, meðal annars PCI, GDPR, ISO/IEC 19794 og 30107 og meginreglum FIDO Alliance.

Um úttekt Javelin

Í úttektinni metur Javelin nýjan markað fyrir lífkennaauðkenningu við afgreiðslu, sem er enn í mótun. Javelin skiptir tækninni í þrjá flokka og velur bestu lausnina í hverjum þeirra: End-to-End Solutions, Biometric Identity and Payment Platform og Biometric Authentication as a Service.

‍

Verifone á Íslandi

Verifone er alþjóðlegt fyrirtæki í greiðslulausnum, en þjónustan hér á landi er íslensk. Við leigjum út posa á föstu mánaðarverði, bjóðum netgreiðslur og svörum í síma, líka á kvöldin og um helgar.

Þú finnur okkur í Hlíðasmára 12 í Kópavogi og nærð í okkur í síma 544 5060.

Nánar um okkur

Svipað efni

Fréttir

Staða minnismarkaðarins: framboð og áhrif á atvinnugreinar

Lesa meira