Skref 1: Gerið samning við samstarfsaðila
Til að geta leigt posa af Verifone þá þarf leigutaki að byrja á því að gera samning við samstarfsaðila listaða hér að neðan. Ef þú ert þegar með samning þá geturðu sleppt skrefi 1 og 2 og farið beint í skref 3.
Hér að neðan eru hlekkir á færsluhirða sem eru í samstarfi við Verifone á Íslandi:
SíminnPay
Skref 2: Samstarfsaðilar senda upplýsingarnar til Verifone
Þegar gerður er samningur við samstarfsaðila, takið fram að þið ætlið að fá posa hjá Verifone og biðjið um að senda upplýsingarnar til Verifone.
Skref 3: Afhending
Hafið samband við okkur í síma 544-5060 eða sendið tölvupóst á verifone(hja)verifone.is og láttu okkur vita hvernig posa þú vilt, hversu marga og hve lengi. Posann sækirðu svo til okkar eða ef þú ert úti á landsbyggðinn sendum við hann til þín í pósti. Ef þig vantar einhverja aðstoð með posann þá geturðu haft samband við okkur í gegnum síma eða tölvupóst.